Innskráning
Nafn:
Lykilorð:
Nýskráning
Skjálftaskjól er félagsmiðstöð Grunnskólans í Hveragerði. Hún er til húsa í skólahúsnæði skólans við Skólamörk. Tilgangur Skjálftaskjóls er að veita börnum og unglingum í Hveragerði tækifæri til heilbrigðrar tómstundaiðkunar undir leiðsögn og eftirliti fagfólks.

Meðal þess sem boðið er upp á í opnum húsum Skjálftaskjóls eru tónlistarsmiðjur, leiklistarsmiðjur, borðtennis, billiard,pílukast, skák ofl. Einnig er boðið upp á beinar útsendingar af íþróttakappleikjum.

Dagskrá
Opin hús fyrir miðstig (5.-7. bekkur) eru sem hér segir:
  • Mánudaga kl. 15:30 - 18:00
  • Miðvikudaga kl. 16:30 - 19:00

Opin hús fyrir unglingastig (8.-10. bekk) eru sem hér segir:
  • Þriðjudaga kl. 19:00 - 21:30
  • Miðvikudaga kl. 19:00 - 21:30

Diskótek eða dansleikir eru haldnir að jafnaði einu sinni í mánuði.
Tímasetning þeirra og annara utandagksrá atburða er hægt að finna undir "Dagská" í síðuvalinu.

Starfsfólk Skjálftaskjóls
  • Páll Sveinsson (forstöðumaður)
  • Guðríður Aadnegard
  • Heiða Margrét Guðmundsdóttir
© Skjalftaskjol.net 2008-2009
Allur réttur áskilinn.