Innskráning
Nafn:
Lykilorð:
Nýskráning
Mar 9
Frábær Samféshelgi að baki
Palli Sveins skrifaði þetta 9 Mars 2010 klukkan 10:28

Frábær helgi er að baki þar sem rúmlega 60 nemendur úr Hveragerði skemmtu sér konunglega. Fyrst á stórtónleikum í laugardagshöll og svo á söngvarakeppni þar sem Berglind María Ólafsdóttir og stöllur stóðu sig gríðarlega vel. Ungmenni Hveragerðis eiga hrós skilið fyrir frábæra framkomu og hegðun!

Mar 5
Upplýsingar f. Samfés
Palli Sveins skrifaði þetta 5 Mars 2010 klukkan 12:40

Þátttakendur á Samfés athugið...

...verið búin að borða áður en lagt er í hann. Margir hafa fallið í yfirlið út af hungri. Ekki gott! En svo eru pizzur til sölu á spottprís.

...klæða ykkur í takt við tilefnið – Tilefnið kallar ekki á 14 cm háa hæla og mini mini pils.

... verið viss um að þið vitið hvar rútan ykkar bíður eftir ykkur

...ekkert fatahengi er í höllinni!

... rúta leggur af stað kl. 17:45 frá GÍH, heimkoma á miðnætti.

... á laugardag leggur rúta af stað kl. 11:45 frá GíH, heimkoma kl. 17:00.

... söngvakeppnin er í beinni á Skjá 1 og Rás 2.

Mar 4
Opið hús á unglingastig í mars
Palli Sveins skrifaði þetta 4 Mars 2010 klukkan 09:18

Opið hús í mars – unglingastig
Miðvikudagur 3. mars – Opið hús bakstur ofl.
Þriðjudagur 9. mars – Opið hús, bein útsending frá Meistaradeidinni – Arsenal vs. Porto!
Miðvikudagur 10. mars – Opið hús, bein útsending frá Meistaradeidinni – Man Utd vs. AC Milan! Bakstur með Guju (Ath bakstur byrjar kl. 19:30)
Þriðjudagur 16. mars – Opið hús, bein útsending frá Meistaradeildinni – Chelsea vs. Inter Milan!
Miðvikudagur 17. mars - Opið hús, bein útsending frá Meistaradeildinni – Barcelona vs. Stuttgart!
Þriðjudagur 23. mars – Opið hús, indversk matargerð. Þátttökugjald kr. 500 – greiðist hjá Palla.
Miðvikudagur 24. mars – Opið hús, undirbúningur og skreytingar fyrir árshátíð.

Mar 4
Opið hús á miðstigi í mars
Palli Sveins skrifaði þetta 4 Mars 2010 klukkan 09:15

Opið hús í mars – miðstig
Miðvikudagur 3. mars – Hæfileikakeppni Skjálftaskjóls
Mánudagur 8 . mars – Opið hús
Miðvikudagur 10. mars - Frí vegna árshátíðarundirbúnings
Mánudagur 15. mars – Opið hús, brjóstsykursgerð, borðtennis, skák ofl.
Miðvikudagur 17. mars – Opið hús, hljómsveitasmiðja - prófaðu að spila á trommur, gítar eða bassa!
Mánudagur 22. mars – Opið hús, brjóstsykursgerð, og fleira
Miðvikudagur. 24. mars – Opið hús, bíósýning

Feb 16
Síðan komin í lag!
Palli Sveins skrifaði þetta 16 Febrúar 2010 klukkan 16:09

Sæl öll.

Síðan hefur legið niðri í nokkra daga en nú er loksins búið að græja það. Fylgist með fréttum...

© Skjalftaskjol.net 2008-2009
Allur réttur áskilinn.