Innskráning
Nafn:
Lykilorð:
Nýskráning
Mar 6
Myndir af öskudagsballi
Palli Sveins skrifaði þetta 6 Mars 2009 klukkan 08:33

Myndir af öskudagsballi Foreldrafélagsins má sjá á þessari slóð hér: http://www.cafekiddarot.is/?pageid=69

Feb 24
Öskudagsball á Kidda Rót
Palli Sveins skrifaði þetta 24 Febrúar 2009 klukkan 19:46

Árleg öskudagsskemmtun elsta stigs á vegum Foreldrafélags Grunnskólans í Hveragerði og Hveragerðisbæjar verður haldin á Kidda Rót á öskudag, miðvikudaginn 25. febrúar, milli 20 og 22.
- DJ Heiðar Austman af FM957 heldur uppi stemningunni
- Aðgangseyrir 500 kr. Pizza og gos frá Vífilfelli innifalið í aðgangseyri (nemendur greiða bara fyrir pizzu og gos en skemmtunin sjálf í boði Foreldrafélagsins)
- Stuð og gleði

Ballið er fyrir nemendur 7. -10 bekkjar. Vonumst til að sjá sem flesta í góðu skapi í náttfötum eða búningum.

Feb 20
Skilaboð til foreldra vegna Samfés
Palli Sveins skrifaði þetta 20 Febrúar 2009 klukkan 13:55

Þeir foreldrar/forráðamenn sem sækja börn sín á Samfés verða að mæta bak við Laugardagshöll, gegnt Suðurlandsbraut. Enginn skjólstæðingur Skjálftaskjóls fær að yfirgefa hópinn nema starfsmenn sjá foreldra/forráðamenn sækja.

Feb 18
Rúta á Samfés
Palli Sveins skrifaði þetta 18 Febrúar 2009 klukkan 08:48

Rútan á Samfés hátíðina kostar kr. 500 dagurinn. Þeir sem ætla báða dagana þurfa því að greiða 1000 kr. Lagt verður af stað frá GÍH kl 17:30 á föstudaginn og komið heim um miðnætti. Á laugardaginn er lagt af stað kl. 12:00 frá GÍH og komið heim um kl. 17:00. Fjórir starfsmenn Skjálftaskjóls verða með hópnum um helgina. Tengiliðir eru Páll Sveinsson (822-9987) og Guðríður Aadnegard (897-4282). Þeir sem ekki fara með rútum verða að hitta hópinn fyrir utan Laugardalshöllina kl. 18:30 á föstudag, annars komast þeir ekki inn. Einnig verða þeir sem ekki fara heim með rútum að láta sækja sig til hópsins.

Feb 2
Samfés helgin
Palli Sveins skrifaði þetta 2 Febrúar 2009 klukkan 08:50

Samfés dansleikurinn og söngvarakeppninn fara fram helgina 20. -21. febrúar í Reykjavík. Skjálftaskjól fær 30 miða og eru þeir til sölu á skrifstofu skólans. Miðaverð er kr. 2500 en eftir á að koma í ljós hver rútukostnaðurinn verður. Hljómsveitir sem koma fram á dansleiknum eru m.a. Dr.Spock, Veðurguðirnir, Bloodgroup og Páll Óskar.
Samfés hátíðin hefur verið haldin í mörg ár. Á föstudeginum er haldinn sameiginlegur dansleikur félagsmiðstöðva á landinu og á laugardeginum eru úrslit söngvarakeppni félagsmiðstöðva.

© Skjalftaskjol.net 2008-2009
Allur réttur áskilinn.