Ekkert skráð fyrir daginn í dag.
Sjá meiraValentínusarvika á unglingastigi. Strákar baka pizzur fyrir stelpurnar - gjörið svo vel dömur!
Stúlknahljómsveitin sem hefur ekkert nafn annað en Stelpurnar Okkar sem Sigruðu Samsuð eru á leiðinni hljóðver hjá Pétri Hjaltested. Pétur þessi er tónlistar- og upptökumaður til margra áratuga og hefur meðal annars stjórnað upptökum hjá Siggu Beinteins og Jóhönnu Guðrúnu. Gaman að heyra hvað kemur út úr þessu! Þurfa Stelpurnar Okkar samt ekki að fá sér nafn?
Skólahljómsveitin Eartquake Army hefur sent inn umsókn til Samfés um að fá að spila á Samféshátíðinni 4. mars. spennandi að sjá hvort Steini, Frissi, Rúnar, Óli og Árni verði ráðnir!
Skráning á Samfés hátíðina hefst miðvikudaginn 9. febrúar á skrifstofu skólans. Miðaverð er kr. 2500 og skal það greitt fyrir föstudaginn 17. febrúar. Leyfismiðar eru á skrifstofu og þurfa þeir að fylgja skráningu. Rútuverð verður á bilinu 1000 – 1500 kr. allt eftir þátttöku og þarf rútan að greiðast fyrir 1. mars. Við minnum á nýjar reglur um klæðaburð en þær má sjá hér: http://samfes.is/index.php/frettir/140-vareandi-samfes
Lagt verður af stað kl. 19:30 frá skólanum, rútan kostar kr. 1000 og skal greiðast fyrir kl. 14:00 í dag á skrifstofu skólans. Miðaverð, kr. 1000, greiðist við inngang dansleiksins sem fer fram í Grunnskóla Þorlákshafnar. Heimkoma verður kl. 23:30. Nemendum er óheimlt að fara á einkabílum.