Innskráning
Nafn:
Lykilorð:
Nýskráning
Jan 31
Skjálftaskjól heimsækir Þorlákshöfn
Palli Sveins skrifaði þetta 31 Janúar 2011 klukkan 10:57

Á fimmtudaginn (3. febrúar) fer Skjálftaskjól á ball í Þorlákshöfn. DJ Óli Geir og Kristmundur Axel sjá um stuðið. Miðaverð er kr. 1000 en rútuverð verður auglýst síðar í vikunni.

Jan 17
Skjálftaskjól sigraði Samsuð!
Palli Sveins skrifaði þetta 17 Janúar 2011 klukkan 11:45

Á föstudaginn fór fram Samsuð söngvarakeppnin í Njálsbúð V-Landeyjum. Fulltrúar Skjálftaskjóls, þær Birta Hörn, Sædís og Anna María gerðu sér lítið fyrir og sigruðu keppnina með glæsibrag. Þær fluttu lagið No one eftir Alicia Keys við íslenskan texta eftir Heimi Eyvindarson stórpoppara og kennara við Grunnskólann í Hveragerði. Alls tóku níu félagsmiðstöðvar af Suðurlandi þátt í kepnninni og komust stelpurnar okkar áfram í úrslitakeppni Samfés sem fram fer í Laugardalshöll 5. mars næstkomandi. Einnig komust fulltrúar félagsmiðstöðva frá Hvolsvelli og Vestmannaeyjum í úrslitin. Sannarlega glæsileg framistaða hjá stelpunum.

Jan 13
Alex sigraði billiardmót!
Palli Sveins skrifaði þetta 13 Janúar 2011 klukkan 10:24

Á dögunum fór fram billiardmót miðstigs á opnu húsi Skjálftaskjóls. Góð þátttaka var á mótinu og sáust mörg snilldartilþrifin. Eftir æsilega úrslitaviðureign stóð einn eftir sem sigurvegari, Alexander Freyr W. Stefánsson úr 6. H. Til hamingju með þetta Alex!

Jan 10
Samsuð hátíðin á föstudaginn!
Palli Sveins skrifaði þetta 10 Janúar 2011 klukkan 11:08

Samsuð söngvakeppninn og dansleikur fer fram í Njálsbúð V-Landeyjum föstudaginn 14. jan n.k. Dansleikur á eftir. Unglingastig GÍH fer á rútu frá GÍH kl. 18:00 og er áætluð heimkoma kl. 01:00. Leyfisbréf afhent í skólanum mánudaginn.

Des 6
Skjálftaskjóli færð gjöf
Palli Sveins skrifaði þetta 6 Desember 2010 klukkan 09:25

Nýverið var Skjálftaskóli færð höfðingleg gjöf, borðspilið Flakk. Það var Ásgeir Viðar Árnason, einn af fjórum höfundum spilsins, sem færði gjöfina. Þetta er alíslenskt spil sem tók um þrjú ár í framleiðslu og er fjörugt og ferskt ævintýraborðspil. Spilið er kapphlaup um spilaborð og lenda keppendur í alskyns ævintýrum á leið sinni, spilið er að öllu leiti ofbeldislaust og felur í sér einfalda og þægilega stærðfræði og málfræði. Flakk verður aðgengilegt í sofu A - spilstofu Skjálftaskjóls.

© Skjalftaskjol.net 2008-2009
Allur réttur áskilinn.