Innskráning
Nafn:
Lykilorð:
Nýskráning
Nóv 8
Dagskrá miðstigs í nóvember
Palli Sveins skrifaði þetta 8 Nóvember 2010 klukkan 13:26

1. nóv Spiladagur
3. nóv Kareokie í sal. Láttu söngfuglinn í þér blómstra
8.nóv Mæðgnadagur og bjóstsykurgerð. Takið mömmu með stelpur og látið þær taka þátt í stuðinu með ykkur
10.nóv Billjardmót(pool). Hver verður billiardmeistari miðstigs?
15.nóv Lokað vegna skipulagsdags
17. nóv Feðgadagur. Strákar bjóða feðrum sínum á opin hús
22. nóv Brjóstsykursgerð fyrir stráka
24. nóv Nóvemberdiskó !!!
29. nóv Brjóstsykursgerð
1. des Jólabíó í sal

Okt 27
Mikið líf í Skjálftaskjóli
Palli Sveins skrifaði þetta 27 Október 2010 klukkan 11:00

Mikið líf hefur verið í haust í félagsstarfi okkar í Skjálftaskjóli. Tveir dansleikir hafa farið fram bæði á mið- og unglingastigi og opin hús hafa verið vel sótt. Hæfileikakeppni miðstigs fór fram fyrir stuttu og sigraði Sesselja Friðriksdóttir keppnina með fögrum söng. Sædís, Birta Hörn og Anna María úr 9. bekk sigruðu undankeppni okkar fyrir söngvarakeppni Samfés í síðustu viku á unglingastigi og munu þær verða okkar fulltrúar á Samsuð (undankeppni Suðurlands fyrir Samfés) í lok nóvember.

Aníta Aradóttir hefur hafið störf við Skjálftaskjól í afleysingum þannig að ekki kemur til lokanna vegna veikinda starfsmanna eins og í fyrra. Við bjóðum Anítu velkomna til starfa.

Okt 5
Opið hús í október - miðstig
Palli Sveins skrifaði þetta 5 Október 2010 klukkan 21:17

Dagskrá Skjálftaskjóls í október
- Miðstig

4. október Opið hús.
6. október Opið hús. Æfingar fyrir hæfileikakeppni.
11. október Opið hús. Hæfileikakeppni miðstigs 2010!!! Skráning fer fram hjá Palla.
13. október Opið hús. Borðtennisæfingar
18. október Opið hús. Guja bakar með bekkjunum.
20. október Borðtennismót miðstigs. Hver verður borðtennismeistari miðstig 2010?
25. október Vetrarfrí
27. október Októberdiskótek miðstigs!!!

Okt 5
Opið hús í október - unglingastig
Palli Sveins skrifaði þetta 5 Október 2010 klukkan 21:16

Opið hús á unglingastigi

-Októberdagskrá

5. okt. Opið hús

6. okt. Opið hús, kvikmyndasýning í sal

12. okt. Opið hús, æfingar fyrir Samfés söngvarakeppnina

13. okt. Lokað hús vegna ballundirbúnings

14. okt. OKTÓBERBALLIÐ!!!

19. okt. Söngvarakeppni Skjálftaskjóls, sigurvegarinn fer í undankeppni Samfés.

20. okt. Opið hús. Bein útsending frá meistaradeildinni

26. okt. Opið hús. Borðtennisnámskeið

Sep 29
Rosalegasta ball sögunnar!
Palli Sveins skrifaði þetta 29 September 2010 klukkan 20:55

Rétt í þessu var að ljúka svakalegasta diskóteki sem farið hefur fram í Grunnskólanum í Hveragerði síðan Bat Out of Hell var öll spiluð upp á lofti í sjálstæðishúsinu ´85! Starfsmenn Skjálftaskjóls gátu ekki valið á milli hvaða bekkur hlyti sæmdarheitið "stuðbekkurinn" en DJ Nonni og Oli Lightning voru hrifnastir af framistöðu 5. bekkjar!! Takk fyrir frábært ball krakkar!!!

© Skjalftaskjol.net 2008-2009
Allur réttur áskilinn.