Ekkert skráð fyrir daginn í dag.
Sjá meiraJæja græjunördar og aðrir áhugamenn um input/output, snúruflækjur og bassabox! Við ætlum að hittast á opnu húsi í kvöld, tengja hljóðkerfið og læra á það. Fikt og föndur í græjugrúsk í kvöld - mættu!
Á dögunum fór hið árlega Rósaball fram í Grunnskólanum í Hveragerði. Rósaballið er nýnemaball þar sem nemendur 8. bekkja eru boðnir velkomnir af 10. bekkingum með formlegum hætti. Elstu nemendur unglingastigs sækja þá yngstu til síns heima, færa þeim rós og fylgja á dansleik. Óhætt er að segja að stórkostlega hafi tekist til í ár, nemendur skörtuðu sínu fínasta og skemmtu sér konunglega við tónlistarflutning DJ Nonna og Rikka G. Hegðun og framkoma nemenda var frábær og er óhætt að fullyrða að unglingar bæjarins eru klárlega í hópi þeirra allra flottustu á landinu! Til hamingju með frábært ball krakkar og til hamingju með krakkana ykkar foreldrar og starfsfólk skólans!
Páll Sveinsson
Forstöðumaður Skjálftaskjóls
Þri 14. – Meistaradeildin í beinni - Man Utd. vs. Rangers!!!
Mið 15. – Meistaradeildin í beinni – Real Madrid vs. Ajax!
Þri 21. – Trommunámskeið! Langar þig að læra á trommur? Komdu á opið hús.
Mið 22. – Ertu söngvari? Komdu í Kareokie og fáðu leiðsögn hjá söngkennara.
Þri 28. – Meistaradeildin í beinni.
Mið 29. – Meistaradeildin í beinni.
Sæl öll.
Opið hús fellur niður á miðstigi í dag mánudag vegna foreldradags. Einnig verður lokað á miðvikudaginn vegna kynningar á íþrótta- og afþreyingastarfi í Hveragerðisbæ.
Hæ allir og til hamingju með daginn!
Í dag er fyrsti opnunardagur Skjálftaskjóls. Nú er um að gera að mæta á opin hús og láta ljós sitt skína. Hvað vilt þú hafa á opnum húsum?
Kv,
Palli
Forstöðumaður Skjálftaskjóls