Innskráning
Nafn:
Lykilorð:
Nýskráning
Mar 27
Ljóðaslamm í Skjálftaskjóli!
Palli Sveins skrifaði þetta 27 Mars 2009 klukkan 13:07

Ljóðaslamm er keppni í að semja og flytja ljóð á óhefðbundinn hátt. Bókasafnið í Hveragerði og Skjálftaskjól bjóða upp á aðstoð við að semja og flytja ljóð á opnum húsum - skráning þarf að fara fram fyrir 12. apríl á Bókasafninu. Keppnin fer fram í lok apríl. Hægt er að skoða hvernig ljóðaslamm fer fram með því að slá "ljóðaslamm" inn sem leitarorð á www.youtube.com.

Mar 23
Myndir frá böllum
Palli Sveins skrifaði þetta 23 Mars 2009 klukkan 09:20

Nýjar myndir eru komnar á myndasvæði, bæði frá rokkballi miðstigs og 80´s balli unglingastigs.

Mar 6
Beinar útsendingar frá Meistaradeild Evrópu
Palli Sveins skrifaði þetta 6 Mars 2009 klukkan 08:48

Í fyrra tókum við upp á því að bjóða upp á beinar útsendingar frá Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í sal skólans. Þetta mæltist vel fyrir og höfum við gert það sama í vetur. Foreldrum er velkomið að koma með börnum sínum og sjá leikina, það er miklu heilbrigðara en að sitja á ölknæpum bæjarins. Þetta skilar líka auknum samverustundum foreldra og barna sem eru gríðarlega mikilvægar. Þó leikirnir fari fram á tímum unglingastigs er nemendum af yngri stigum heimilt að fylgjast með leikjunum í fylgd fullorðinna. Nemendur í 7. bekk mega koma án foreldra eða forráðamanna.

Mar 6
Myndir af öskudagsballi
Palli Sveins skrifaði þetta 6 Mars 2009 klukkan 08:33

Myndir af öskudagsballi Foreldrafélagsins má sjá á þessari slóð hér: http://www.cafekiddarot.is/?pageid=69

Feb 24
Öskudagsball á Kidda Rót
Palli Sveins skrifaði þetta 24 Febrúar 2009 klukkan 19:46

Árleg öskudagsskemmtun elsta stigs á vegum Foreldrafélags Grunnskólans í Hveragerði og Hveragerðisbæjar verður haldin á Kidda Rót á öskudag, miðvikudaginn 25. febrúar, milli 20 og 22.
- DJ Heiðar Austman af FM957 heldur uppi stemningunni
- Aðgangseyrir 500 kr. Pizza og gos frá Vífilfelli innifalið í aðgangseyri (nemendur greiða bara fyrir pizzu og gos en skemmtunin sjálf í boði Foreldrafélagsins)
- Stuð og gleði

Ballið er fyrir nemendur 7. -10 bekkjar. Vonumst til að sjá sem flesta í góðu skapi í náttfötum eða búningum.

© Skjalftaskjol.net 2008-2009
Allur réttur áskilinn.